|
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| |
Lærið
þýsku í Regensburg –
Þýskunámskeið í Þýskalandi |
Free consulting via Skype.
from 9:00 to 13:00 in English, Spanish, French,
Italian and German
 |
Horizonte
– Stofnun fyrir tungumál, samskipti og menningu
Bernhard Freidl og Martin Mayer, stofnendur Horizonte
Frá stofnun Horizonte á árinu
1986 höfum við boðið upp á fyrsta
flokks kennslu þar sem lögð er áhersla
á
Að miðla skrifuðu og töluðu þýsku
nútímamáli
Bætta samskiptatækni
Kynningu á samtímastjórnmálum
og menningarlífi í Þýskalandi
Flestir nemendur okkar (á aldrinum 17 til 77
ára, um 500 á ári) velja skólann
okkar vegna þess að fyrrverandi nemendur mæla
með honum. Nemendum hefur þótt þetta
mikilvægast:
Úrval mismunandi námskeiða
Sveigjanlegar og áhrifaríkar aðferðir
sem miða að góðri samskiptahæfni
Hæfir og áhugasamir kennarar
Vinalegt og persónuleg andrúmsloft lítils
skóla (hámark 80 nemendur)
Litlir alþjóðlegir hópar (hámark
10, venjulega 8 þátttakendur í hóp)
Staðsetning skólans og gistiheimilisins í
miðbænum
Menningarleg dagskrá utan skólatíma
Samkeppnishæft verð
Meiri upplýsingar á
þýsku, ensku,
spænsku og frönsku
getið þið fundið hér.
|
|
| Horizonte News: |
New: all the rooms in our on-site residence have free internet access
Neu: alle Zimmer in unserem Wohnheim haben jetzt kostenlosen Internetanschluss
|

|
|
|
Regensburg Regensburg
(145,000 íbúar) stendur við nyrsta hluta
Dónár í hjarta Bæjaralands.
Þessi forna borg var stofnuð af Rómverjum
og þar til á 19. öld var hún
ein af mikilvægustu þéttbýlisstöðum
Þýskalands. Í miðbænum eru
sögulegar byggingar frá tímum Rómverja,
en Regensburg er ein af fallegustu borgum Þýskalands.
Þér mun strax líða eins og þú
sért heima hjá þér í
þröngum götum og á líflegum
torgum miðbæjarins þar sem er að finna
gnægð bjórgarða, bara, kráa,
veitingastaða og kaffihúsa. Bærinn hefur
upp á margt að bjóða: söfn,
leikhús, bíó og nútíma
háskóla, þar sem 20,000 stúdentar
stunda nám. Bókasafn háskólans
sem er eitt besta háskólabókasafn
í Þýskalandi er einnig opið nemendum
okkar. Við Dóná og þverár
hennar má iðka margs konar íþróttir
og leita annars konar afþreyingar. Skólinn
er til húsa í björtum og nútímalegum
húsakynnum í miðbænum. Þaðan
er útsýni yfir dómkirkjuna sem
byggð var á miðöldum. Í skólanum
er lítið gistiheimili.
Meiri upplýsingar á þýsku,
ensku, spænsku
og frönsku getið
þið fundið hér.
|
 |
| |
|
Námskeið
Í alþjóðlegu umhverfi skólans munuð þið njóta fjölbreyttra
kennsluaðferða, þar sem tengdir eru saman meðal annars
skapandi þættir og samskiptahæfni, Við höfum upp á að
bjóða framúrskarandi kennara sem eru fullir áhuga og
hafa áralanga reynslu af þýskukennslu fyrir fullorðna.
Námskeiðum okkar er skipt niður í sex stig, allt frá
algjörum byrjendum til lengra kominna (lengra komnir
geta verið þýskukennarar eða nemendur sem eru að læra
þýsku á háskólastigi). Hver kennslustund er 45 mínútur.
Dagsetningar og verðskrá,
upplýsingar um próf, prófsundirbúningsnámskeið,
önnur námskeið og námskeiðslýsingar
eru á heimasíðu okkar: hér
Meiri upplýsingar á þýsku,
ensku, spænsku
og frönsku getið
þið fundið hér. |
 |
| |
|
| Dagskrá utan
skólatíma
Við viljum að þið
kynnist Þýskalandi og Þjóðverjum.
Þess vegna skipuleggjum við víðtæka
dagskrá sem inniheldur: ferðir með leiðsögn
um borgina og fyrirlestra um þýska sögu,
stjórnmál og bókmenntir. Sérstök
efni tungumálakennslunnar eru tekin fyrir svo
sem hljóðfræði, orðatiltæki
og algengar villur leiðréttar. Þá
er boðið upp á vídeókvöld,
matar- og kráarkvöld, farið í
heimsóknir í nálæg fyrirtæki
svo sem bjórverksmiðjur, BMW, Infineon, ritstjórn
dagblaðs og sykurverksmiðju.
Annan hvern laugardag er farið
í dagsferðir til nálægrar borgar
eða áhugaverðra staða í Bæjaralandi
og á miðvikudögum er farið í
hálfsdagsferð. Á föstudögum
eru stundaðar íþróttir eins
og gönguferðir, hjólreiðaferðir,
sund, skautar ,fótbolti, blak og skokk.
Dagskráin er þátttakendum
að kostnaðarlausu en greiða þarf aðgangseyri
og ferðir. |
 |
|
|
Gisting Eftirtaldir
möguleikar eru í boði:
Skólagistiheimili sem er í sömu byggingu
og skólinn, á 4. hæð í
stóru húsi í miðbænum.
Í boði eru einsmanns og tveggjamanna herbergi
og eru öll herbergin reyklaus. Í hverju
herbergi er sturta og salernisaðstaða. Fyrir
hendi er rúmgóð sameiginleg aðstaða
þar sem er sjónvarp, eldhús og tölvur
með internetaðgangi, nemendum að kostnaðarlausu.
Herbergi á stúdentagarði (einstaklingsherbergi
– sum með eigin sturtu og salernisaðstöðu,
sameiginlegt eldhús).
Heimagisting
(hjá fjölskyldum), annaðhvort með
afnot af eldhúsi, með morgunmat eða hálfu
fæði (morgunmat og kvöldmat).
Bókuð eru einstaklingsherbergi
nema annað sé tekið fram. Takmarkaður
fjöldi herbergja er í boði. |
 |
| |
|
Mat á getu/Viðurkenning
Sendið okkur vinsamlegast matsprófið með
greiðslunni eða í síðasta lagi
tveim vikum fyrir námskeiðið. Lokamat á
þýskukunnáttu ykkar verður gert
þegar þið komið. Þá munum
við setja ykkur í hóp við hæfi.
Við lok námskeiðisins fá allir þátttakendur
viðurkenningu fyrir þátttökuna..
|
|
| |
|
Skráning/Greiðsla
Mælt er með að bókað sé með góðum
fyrirvara. Hægt er að skrá sig á netinu, með faxi eða
pósti. Vinsamlegast sendið skráningargjald með umsókn
ykkar eða eftir að hafa fengið staðfestingu frá okkur.
Hægt er að greiða með kreditkorti, símgreiðslu, ávísun
eða ferðatékkum. Fullnaðargreiðsla skal hafa farið fram
áður en námskeið hefst og í síðasta lagi við komu.
|
|
| |
|
Koma/Brottför
Koma er venjulega á sunnudegi.
Ef þú dvelur hjá fjölskyldu, sendum við þér heimilisfang
og símanúmer hennar með fyrirvara og biðjum þig um að
láta hana vita um komutíma þinn. Ef þú átt bókað herbergi
í skólagistiheimilinu eða á stúdentagarði gerum við
ráð fyrir að þú komir í skólann á milli kl. 17:00 og
19:00 á sunnudegi.
Frá flugvellinum í München eru
reglulegar lestar- og rútuferðir til Regensburg. |
 |
| |
|
|
|
 |
Meiri upplýsingar
á þýsku, ensku,
spænsku og frönsku
getið þið fundið hér. |
 |
 |
 |
|
|
|
 |
 |